Finndu rétta staðinn

Hópar hafa ólíkar þarfir og væntingar. Fyrir suma skiptir öllu að flugtíminn sé sem stystur. Fyrir aðra er brottfarartíminn lykilatriði. Enn aðrir vilja bara komast í smá sól — helst eitthvert þar sem bjórinn er ódýr.

Áfangastaðir

England

2:55

flugtími

London

Þessi sögulega borg við ána Thames er ein af máttarstólpum evrópskrar menningar og ferðatíminn er stuttur. 

2:55

flugtími

Brighton

Þessi fallegi strandbær er vinsæll áfangastaður fyrir hópa. Flogið er til London, en rútuferðin til Brighton tekur um klukkustund. Í bænum er allt í góðu göngufæri og þar má finna ótal verslanir, veitingahús, pöbba og fjölbreytta dægradvöl fyrir alla aldurshópa.

2:40

flugtími

Manchester

Stutt flugleiðin gerir Manchester að afar ákjósanlegum kosti fyrir hópa, en þessi líflega borg er hvað þekktust fyrir árangur sinn á sviði tónlistar og íþrótta. Þar er að finna fjölda verslana, söfn af ýmsum toga og það er aldrei langt í næsta pöbb.

Skotland

2:15

flugtími

Glasgow

Okkar allra stysta flugleið er til stærstu borgar Skotlands, en það hjálpar hópnum þínum að nýta tímann sem best. Í Glasgow má finna verslanir og veitingahús við allra hæfi, sögufrægar byggingar, söfn, pöbba og tónleikastaði. Borgin hefur verið kölluð ein sú vinalegasta í heimi, enda Skotar höfðingjar heim að sækja.

Írland

2:35

flugtími

Dublin

Það tekur örstutta stund að fljúga til höfuðborgar Írlands, en fæstum myndi endast ævin til að upplifa allt það sem Dublin hefur upp á að bjóða. Lifandi tónlist, mikilfengleg mannvirki, úrval veitingastaða og fornfrægar knæpur við hvert fótmál, þar sem vinsælasti drykkur heimamanna, Guinness, rennur ljúft ofan í gestina. Skál í botn!

Danmörk

3:10

flugtími

Kaupmannahöfn

Það er ljúft að heimsækja hina kumpánlegu Kaupmannahöfn, sérstaklega í góðum félagsskap. Þar er bjórinn alltaf ískaldur, ávallt stutt í skemmtilegar verslanir og fyrsta flokks veitingastaði, að ógleymdri hinni heilögu þrenningu: síld, snafs og smørrebrød.

Svíþjóð

3:10

flugtími

Stokkhólmur

Fjölmennasta borg Svíþjóðar er einn stór skemmtistaður, þar sem þinn hópur hefur nóg fyrir stafni frá morgni og langt fram á nótt. En borgin hentar einnig þeim sem kjósa aðeins meiri afslöppun. Framúrstefnuleg byggingarlist, búðir og barir, kaffihús, söfn og almenningsgarðar — þetta finnur þú allt í Stokkhólmi.

Spánn

4:20

flugtími

Barcelona

Hópurinn á von á góðu í höfuðborg Katalóníu. Tapas og sangríur, ægifögur strandlengja og heillandi arkitektúr er aðeins brotabrot af því sem Barcelona hefur upp á að bjóða, því þessi magnaða miðaldaborg hefur eitthvað fyrir alla. Njótið matarins, menningarinnar og milda veðursins allt árið um kring.

4:20

flugtími

Sitges

Strandbærinn Sitges er vinsæll áfangastaður fyrir hópaferðir, enda hefur bærinn allt til alls, þrátt fyrir smæð sína. Flogið er til Barcelona en það tekur einungis um 40 mínútur að aka til Sitges, þar sem allt er í góðu göngufæri, skemmtistaðir skipta hundruðum og veitingastaði má finna á hverju götuhorni.

4:35

flugtími

Alicante

Ljúffengur matur, svalandi drykkir og fjölbreytt afþreying fyrir alls konar hópa. Gamli bærinn einkennist af litríkum götum og krúttlegum búðum. Fallegar strendur hvert sem litið er og gott hitastig allt árið um kring.

Frakkland

3:30

flugtími

París

Hina rómantísku höfuðborg Frakklands þarf vart að kynna. Ólíkir borgarhlutar Parísar hafa allir sín sín sérkenni, en sama hvert farið er, þá getur hópurinn notið þess besta sem evrópsk menning hefur að bjóða. Dásamlegur matur, dýrindis vín, bakarí og kaffihús á hverju horni, listasöfn og heimþekkt kennileiti. Þið finnið þetta allt í París.

Ítalía

4:20

flugtími

Mílanó

Tískuborgin Mílanó er önnur stærsta borg Ítalíu og þar mun hópurinn þinn hafa nóg við að vera. Einstakur arkitektúr og ógrynni heimsþekktra kennileita, veitingahús í heimsklassa, fjörugt næturlíf, kaffihús á hverju horni og tækifæri til að sjá frægustu listaverk gömlu meistaranna með berum augum.

4:30

flugtími

Róm

Höfuðborg Ítalíu og jafnframt stærsta borgin er heillandi áfangastaður fyrir hópa sem þyrstir í menningu, mannlíf og matargerðarlist í heimsklassa. Borgin er uppfull af spennandi sögu og hrífandi byggingum sem staðið hafa í aldanna rás. Þá er Róm einstaklega skemmtileg verslunarborg, en „Rómartískan“ er þekkt um víða veröld.

Holland

3:15

flugtími

Amsterdam

Einstök borg sem hefur verið afar vinsæll áfangastaður fyrir hópaferðir frá Íslandi um áratugaskeið, þar sem litríkar byggingar, kaffihús og listasöfn tryggja ljúfar stundir. Steinsnar frá Amsterdam má svo finna borgirnar Rotterdam og Haag, þar sem lífið er ekki síðra.

3:15

flugtími

Haag

Þessi gróðursæla strandborg hefur allt til alls fyrir hópinn þinn. Flogið er til Amsterdam, en aksturinn yfir til Haag tekur einungis um 40 mínútur. Margvísleg afþreying er í boði, auk fjölda veitingastaða, kaffihúsa, næturklúbba og verslana af ýmsum toga.

Þýskaland

3:35

flugtími

Berlín

Að heimsækja þessa stærstu borg Þýskalands er einstök upplifun, þar sem ólíkir menningarheimar mætast með öllum sínum sérkennum. Iðandi mannlíf, matur frá öllum heimshornum, listasöfn, bjórhallir og næturklúbbar sjá til þess að hópnum þínum leiðist aldrei.

3:40

flugtími

Frankfurt

Þrátt fyrir að vera sennilega þekktust fyrir að vera miðstöð fjármála í Þýskalandi, þá er margt skemmtilegt að sjá og gera í Frankfurt. Þessi fallega borg hýsir kynstrin öll af veitingahúsum, skemmtistöðum og knæpum, en til að upplifa hinn sanna anda borgarinnar er mikilvægt að hópurinn skáli að minnsta kosti einu sinni í eplavíninu fræga, á þartilgerðri krá.

3:40

flugtími

Heidelberg

Þessi litla borg þykir ein sú fegursta í gervöllu Þýskalandi. Flogið er til Frankfurt og tekur einungis um 50 mínútur að aka þaðan til Heidelberg. Smæð borgarinnar gerir hana afar ákjósanlega fyrir hópa, enda auðvelt að fara allra sinna ferða fótgangandi. Nóg er við að vera, hvort sem ætlunin er að skoða glæsileg mannvirki, borða góðan mat eða þamba nokkrar kaldar krúsir.

Tékkland

3:50

flugtími

Prag

Höfuðborg Tékklands er oft nefnd fallegasta borg Evrópu, enda flykkjast tökulið frá Hollywood reglulega til Prag til að taka upp senur fyrir stórmyndir. Í borginni finnur hópurinn þinn nóg af veitingastöðum, kaffihúsum og mögnuðum mannvirkjum – og ekki gleyma að skoða eitt helsta tákn borgarinnar, sem er Karlsbrúin tignarlega.

Pólland

3:35

flugtími

Gdansk

Hafnarborgin Gdansk er ein elsta borg Póllands og vinsæll viðkomustaður ferðalanga allt árið um kring. Borgin geymir mikla sögu og einkennist af fallegri byggingarlist, mögnuðu mannlífi, skemmtilegum götumörkuðum, góðum veitingahúsum og kröftugu næturlífi.

4:05

flugtími

Kraká

Ein af elstu borgum Evrópu hefur að geyma mikla sögu, fjölda gamalla bygginga, mikið úrval veitingahúsa og næturlíf sem svíkur engan. Gamli bærinn er gullfallegur og auðvelt er að komast um fótgangandi, verðlag er lágt og Kraká því tilvalin fyrir pöbbaröltið.

Lettland

3:40

flugtími

Riga

Það mun fara vel um hópinn þinn í höfuðborg Lettlands, þar sem víðs vegar má finna fyrsta flokks veitingastaði, kósí kaffihús, bjórgarða, götumarkaði og græn svæði. Gamli bærinn í Riga er á heimsminjaskrá UNESCO, en þar er best að komast leiðar sinnar fótgangandi og drekka í sig lettneska menningu.