Hristu hópinn saman
Þú ræður ferðinni
Við hjálpum þér að skipuleggja hana
Að ferðast með stóran hóp er púsluspil. Okkar reynsla tryggir gott utanumhald og auðveldan undirbúning.
Áætlunarflug eða leiguflug, ásamt úrvali af frábærum hótelum. Við finnum hentugar lausnir fyrir þinn hóp.

Er ekki eitthvað skemmtilegt að sjá og upplifa fyrir hópinn? Við lumum á ótalmörgum hugmyndum.

Matur, skreytingar, skemmtiatriði – við skipuleggjum ógleymanlega árshátíð með þér.

Allar stærðir hópa
Hversu stór er hópurinn þinn?
Við búum yfir mikilli reynslu í að skipuleggja ferðir fyrir allt frá litlum hópum upp í nokkur hundruð manna fyrirtæki.
20–100
Fjöldi frábærra áfangastaða í boði með áætlunarflugi. Möguleikarnir eru margir – leyfðu okkar að sérsníða ferðina fyrir þinn hóp.
100–450
Með stærri hópum aukast flækjustigin. VERDI býður upp á upp á heildarlausnir fyrir þinn hóp, fagleg samskipti og gott utanumhald.
450+
Stærri framkvæmd sem við höfum góða reynslu af. Hér vilt þú hafa fólk með þér í liði sem hefur reynslu af stórum viðburðum erlendis. Möguleikarnir eru endalausir!
Áfangastaðir af öllum gerðum
Vill hópurinn stuttan flugtíma? Sól og hita? Eða bara ódýran bjór?
2:55
flugtími
London
Þessi sögulega borg við ána Thames er ein af máttarstólpum evrópskrar menningar og ferðatíminn er stuttur.
3:10
flugtími
Kaupmannahöfn
Það er ljúft að heimsækja hina kumpánlegu Kaupmannahöfn, sérstaklega í góðum félagsskap. Þar er bjórinn alltaf ískaldur, ávallt stutt í skemmtilegar verslanir og fyrsta flokks veitingastaði, að ógleymdri hinni heilögu þrenningu: síld, snafs og smørrebrød.
2:40
flugtími
Barcelona
Hópurinn á von á góðu í höfuðborg Katalóníu. Tapas og sangríur, ægifögur strandlengja og heillandi arkitektúr er aðeins brotabrot af því sem Barcelona hefur upp á að bjóða, því þessi magnaða miðaldaborg hefur eitthvað fyrir alla. Njótið matarins, menningarinnar og milda veðursins allt árið um kring.
4:20
flugtími
Mílanó
Tískuborgin Mílanó er önnur stærsta borg Ítalíu og þar mun hópurinn þinn hafa nóg við að vera. Einstakur arkitektúr og ógrynni heimsþekktra kennileita, veitingahús í heimsklassa, fjörugt næturlíf, kaffihús á hverju horni og tækifæri til að sjá frægustu listaverk gömlu meistaranna með berum augum.
3:55
flugtími
Gdansk
Hafnarborgin Gdansk er ein elsta borg Póllands og vinsæll viðkomustaður ferðalanga allt árið um kring. Borgin geymir mikla sögu og einkennist af fallegri byggingarlist, mögnuðu mannlífi, skemmtilegum götumörkuðum, góðum veitingahúsum og kröftugu næturlífi.
3:50
flugtími
Prag
Höfuðborg Tékklands er oft nefnd fallegasta borg Evrópu, enda flykkjast tökulið frá Hollywood reglulega til Prag til að taka upp senur fyrir stórmyndir. Í borginni finnur hópurinn þinn nóg af veitingastöðum, kaffihúsum og mögnuðum mannvirkjum – og ekki gleyma að skoða eitt helsta tákn borgarinnar, sem er Karlsbrúin tignarlega.
Framúrskarandi ferðir með fyrirmyndarfólki
Síðan 1947 hefur okkur verið annt um að viðskiptavinir viti að þeir séu í öruggum höndum þegar ferðast er á framandi slóðir. Sá metnaður starfsfólks okkar endurspeglast í því að Verdi er í hópi þeirra fáu fyrirtækja sem hlotið hafa nafnbótina Framúrskarandi fyrirtæki hjá Creditinfo, ásamt því að vera Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri samkvæmt Viðskiptablaðinu og Keldunni.




